Sundrun

Sundrun | Um verkin

Skyggnur leystar upp í litaflæði og óhlutbundin form.
Einskonar afbygging hins stirðnaða forms eða sundrun. Venjulegar íslenskar landslagsmyndir og mannlífsmyndir flæða um myndflötinn; mynda einskonar litaspjald málarans.



SUÐUR - NORÐUR

í garði vínviðar
  litadýrðar blóma
    umkringdum hrauni
      og jöklum

      leika litir meðal
    fölgrænna,
  heitrauðra,
kaldblárra,
  svarthvítra
    tóna
     leikrænnar sundrunar

  norðanvindurinn - sunnanvindurinn
þruma samhljóma
        Í landi elda og ísa
  hef árhringinn gist
njótið gjafa minna
       af hjartans list
land og þjóð
                 af undrun
TÍMANN upplifir
             í
                SUNDRUN

                     
J. Friðrik Arason



Marisa opnar okkur í myndum sínum heim ímynda og dulmagna, sem eru hlaðin táknum, heim sem minnir á drauma eða horfna forfeður, umskapar heim ljóss og vatns, sem er ekki til nema í hennar persónulegu verkum.